Björn, Snæbjörn og Steinunn unnu mánuðinnBest um kvöldið spilaði Björn Sig. 1.176 í 6 leikjum (196 í meðaltal) og fast á hæla honum kom svo Atli Kárason með 1.175 í 6 leikjum (196 í meðaltal), en Atla vantaði ekki nema 24 pinna til að komast inn í mánaðarúrslitin í stað Björns. Þriðja besta spilamennskan þetta kvöldið var hjá Inga Geir sem spilaði 1.161 í 6 leikjum (194 í meðaltal). Spilað var í mánaðarúrslitum og í A flokki áttust við Björn og Kristján. Björn vann nokkuð auðveldlega 220-150 og spilaði því við Inga. Björn vann þann leik líka og nú í jöfnum og spennandi leik 201-191. Í B flokki
áttust við Einar SIg. og Snæbjörn í spennandi viðureign sem endaði með sigri Snæbjarnar, 205-192. Snæbjörn spilaði því við Sigurbjörn og vann þá viðureign einnig og nú með 174-149. Þetta eru því önnur mánaðarúrslitin í röð sem hann vinnur. Í C flokki mætti ekki Þórunn sem var í öðru sæti og því spiluðu þau Guðmundur Örn og Steinunn til úrslita og vann Steinunn 146-121.
Meira »