 Ólafur er í ÍR-a, en var í Keiluvinum í fyrra |
KDK-Keiluvinir fóru þess á leit við mótanefnd KLÍ að fá frestun á leik þeirra við ÍR-a í bikarnum í gærkvöldi. Mótanefnd hafnaði þeirri beiðni á grundvelli þess að beiðnin barst rúmum 5 klst. fyrir leik, en þarf að berast 6 tímum fyrir leik skv. reglum mótanefndar. Ástæða frestunar Keiluvina er að tveir leikmenn liðsins voru veikir og varamaðurinn fjarri góðu gamni.
Eftir að hafa fengið neitun hjá mótanefnd höfðu Keiluvinir samband við liðsmenn ÍR-a og báðu þá um frestun. ÍR-a bauðst þá til að veita frestun, en aðeins með skilyrðum. Annars vegar að Matthías, liðsmaður ÍR-a gæti spilað frestaða leikinn og hinsvegar að Ásgrímur, varamaður Keiluvina, spili ekki frestaða leikinn. Þessir skilmálar fóru mjög illa í Keiluvini og voru þeir ekki til í að gangast við þeim og duttu því úr bikarnum í gærkvöldi. Þess má geta að einn liðsmaður úr hvoru liði situr í mótanefnd og viku þeir báðir sæti í þessu máli.
Bs |