Fös 30.júl 2010 00:17
Björn, Snæbjörn og Steinunn unnu mánuðinn

Sigurvegararnir
Best um kvöldið spilaði Björn Sig. 1.176 í 6 leikjum (196 í meðaltal) og fast á hæla honum kom svo Atli Kárason með 1.175 í 6 leikjum (196 í meðaltal), en Atla vantaði ekki nema 24 pinna til að komast inn í mánaðarúrslitin í stað Björns. Þriðja besta spilamennskan þetta kvöldið var hjá Inga Geir sem spilaði 1.161 í 6 leikjum (194 í meðaltal). Spilað var í mánaðarúrslitum og í A flokki áttust við Björn og Kristján. Björn vann nokkuð auðveldlega 220-150 og spilaði því við Inga. Björn vann þann leik líka og nú í jöfnum og spennandi leik 201-191. Í B flokki áttust við Einar SIg. og Snæbjörn í spennandi viðureign sem endaði með sigri Snæbjarnar, 205-192. Snæbjörn spilaði því við Sigurbjörn og vann þá viðureign einnig og nú með 174-149. Þetta eru því önnur mánaðarúrslitin í röð sem hann vinnur. Í C flokki mætti ekki Þórunn sem var í öðru sæti og því spiluðu þau Guðmundur Örn og Steinunn til úrslita og vann Steinunn 146-121.

Sjá stöðuna hér

Sjá mánaðarstöðuna hér og úrslitin

Næsta þriðjudag verður síðan nýr olíuburður og er hann jafn langur þeim síðasta. Olíuburðurinn heitir 2010 ETBF European Youth Championship og er 40 fet. Þessi olíuburður á að vera meira krefjandi en sá síðasti, en miðað við hvað menn voru í miklu basli með hann þá kæmi það ekki á óvart þó þessi reyndist mun auðveldari.

BS

Þri 07.sep 2010 23:38 Böddi spilaði best í kvöld
Lau 04.sep 2010 09:55 Ný könnun hér til hægri
Fim 02.sep 2010 23:08 Böddi spilaði best í kvöld
Mið 01.sep 2010 22:49 Ingi, Sigurbjörn og Þórunn unnu mánuðinn
Fim 26.ágú 2010 23:54 Böddi spilaði aftur best allra
Þri 24.ágú 2010 23:56 Böddi spilaði best í kvöld
Fim 19.ágú 2010 22:24 Atli spilaði best í kvöld
Mið 18.ágú 2010 00:26 Einar Már spilaði best í kvöld
Mán 16.ágú 2010 02:10 Sumarmót Sigga frænda er 23 ára
Lau 14.ágú 2010 00:35 Sumarmót Sigga frænda lengist um mánuð
Fim 12.ágú 2010 23:28 Böddi spilaði best allra
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20  



Hvernig olíuburð vilt þú sjá í deildinni í vetur?
Erfiðan
Miðlungs
Auðveldan
Hef ekki skoðun á þessu











© 2006 Keila.is     Vefhönnun Design EuropA